Hugmyndir
Til þess að gera endrurvinnslu og endurnýtingu farsíma auðveldari væri góð hugmynd að við hliðina á hverjum ruslagámi væri settur sér gámur fyrir öll raftæki svo fólk ætti auðveldari með að endurnýta.


Við ákváðum að taka gamlan Samsung síma í sundur til þess að ná gulli úr honum.
Við byrjuðum að teka allt úr og af símanum sem hægt var án verktækja.

Við leystum þær skrúfur sem voru sýnilegar og opnuðum símann.
Við leystum síðan móðurborðið frá restinni eins og sjá má á næstu tveimur myndum.


Í móðurborðinu er hægt að finna ýmislega málma og verðmæti.


Hér má sjá myndavélina sem tengd er við kopar.


Hér vorum við búnar að taka sem mest af símanum í sundur.
Við settum bútana með gullinu í saltsýru og vetnisperoxíð 6% og létum það liggja ofan í blöndunni í nokkra daga.


Eftir að við vorum búnar að láta það liggja í blöndunni aðskyldum við gullið frá hinum efnunum og skoluðum það með vatni.
Eftir hreinsunina límdum við korkinn við glasið svo vökvinn myndi ekki renna úr.
